LEIKUR ALDARINNAR!!

Í kvöld fer fram leikur aldarinnar á Ásvöllum. Þá tekur stórliðið Haukar 2 á móti Haukum. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Haukar 2 er skipað leikmönnum sem hættir eru að leika í efstu deild. Liðið leikur í utandeildinni og hefur gert það síðustu ár með frábærum árangri.
Í fyrra hafnaði liðið í 2.sæti, tveimur stigum á eftir ÍR sem sigraði deildina. Liðið sigraði 15 af 18 leikjum sínum. Liðið er skipað stórstjörnum á borð við Einar Jónsson, Óskar Ármannsson, Pétur Vilberg Guðnason, Sigurjón Sigurðsson, Sigurjón Bjarnason, Gústaf Bjarnason, Bjarna Frostason og fleiri. Það er erfitt að telja allar stórstjörnur liðsins upp hér þar sem listinn er langur.
Lið Hauka hafnaði einnig í öðru sæti Íslandsmótisins í fyrra. Þeir voru með jafnmörg stig og Fram sem sigraði. Liðið sigraði 21 af 26 leikjum sínum.
Bæði liðin urðu Íslandsmeistarar árið 2005.
Það má því búast við hörkuleik á Ásvöllum. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega til að ná sætum.
ÁFRAM HAUKAR!!