Haukar – Akureyri

Í dag fór fram leikur Hauka og Akureyrar í úrvalsdeild karla. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en okkar strákar ávallt á undan. Í stöðunni 8-8 náðu þó okkar strákar að hrista norðanmenn af sér og komust í 13-8. Þeir héldu muninum 4-5 mörk það sem eftir var hálfleiksins og var staðan í hálfleik 18-15.

Í síðari hálfleik byrjaði leikurinn svipað og fyrri hálfleikurinn endaði. Strákarnir héldu forskotinu 4-5 mörk þar til í stöðunni 30-26. Eftir það náðu Akureyringar að minnka muninn og jöfnuðu svo 32-32. Leikurinn var svo í járnum það sem eftir lifði og brutust út slagsmál í lokin sem enduðu með því að Rúnar Sigtryggsson og Hörður Fannar Sigþórsson hjá Akureyri og Andri Stefan fengu allir rautt spjald.

Lokatölur í leiknum 34-34.

Markahæstur í liði Hauka var Kári Kristján með 7 mörk. Árni Þór og Samúel Ívar skoruðu 6.
Hjá Akureyri voru Nikolaj Jankovic og Goran Gucis með 7 mörk.