Cornexi Alcoa – Haukar, leikur II

Í dag fór fram síðari leikur stelpnanna okkar við Cornexi Alcoa frá Ungverjalandi. Haukastelpur töpuðu fyrri leiknum 26-31 og þurftu því að sigra með minnst 5 marka mun. Fyrri hálfleikurinn var spennandi og skiptust liðin á að hafa forystu. Staðan í hálfleik var 11-9 okkar stelpum í vil.

Í síðari hálfleik virtist leikurinn ætla að fara sömu leið og á föstudaginn. Cornexi náði að jafna 11-11 en þá tóku okkar stelpur sig á og juku forskotið. Þær skoruðu 6 mörk í röð og komust í 17-11 og voru komnar áfram miðað við þá stöðu. En eitthvað slökuðu þær á og náðu Cornexi stelpur að minnka muninn hægt og rólega og í lok leiks var leikurinn jafn. Lokatölur 22-22. Cornexi Alcoa sigraði því samanlagt 53-48 og komast því í 3. umferð Evrópukeppni bikarhafa.

Markahæst í liði Haukastelpna var Ramune með 12 mörk. Helga varði vel í markinu og voru þær bestu menn vallarins.