Haukar-Fram mfl. kvk

Í gær fór fram leikir Hauka og Fram í DHL deild kvenna. Stelpurnar okkar höfðu unnið báða leiki sína fyrir þennan leik en Fram hafði tapaði einum og gert eitt jafntefli. Fyrirfram var búist við að okkar stelpur myndu sigra leikinn.

Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn mjög illa. Fram stelpur voru allan leikinn skrefinu á undan og okkar stelpum gekk illa að ná að jafna. Leikurinn þróaðist þannig að Fram stelpur komust 3-4 mörkum yfir, okkar stelpur minnkuðu muninn í 1 mark en komust ekki nær. Þó höfðu þær fjölmörg tækifæri á að jafna en misnotuðu þau. Staðan í hálfleik var 9-12 Fram í vil.

Síðari hálfleikurinn þróaðist alveg eins og sá fyrri. Fram var alltaf skrefinu á undan en okkar stelpur náðu að jafna þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum. Þær höfðu tækifæri til að komast yfir en misnotuðu það. Fram fór með sigur af hólmi 21-20.

Markahæst var Ramune með 9 mörk, Sandra skoraði 5 mörk, Hanna Guðrún 4 og Harpa og Erna Þráins 1 mark hvor.
Hjá Fram var Anett Köbli markahæst með 8 mörk, Hekla Daðadóttir skoraði 5 mörk, Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3 mörk hvor og Eva Hrund Harðardóttir og Sara Sigurðardóttir 1 mark hvor.

Næsti leikur stelpnanna er í Vestmannaeyjum á föstudaginn og er alveg ljóst að stelpurnar okkar verða að spila mun betur þá ætli þær sér sigur.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…