Um helgina fór fram forkeppni 4.flokks kvenna. Haukar senda í 4.flokki til keppni tvö lið, A og B lið. Þar sem þátttaka B liða er lítil þá er aðeins ein deild og Haukar því sjálfkrafa komnir í 1.deild þar. A liðið þurftu hins vegar að spila í forkeppni og mættu okkar stelpur liðum Gróttu1, Gróttu 2 og HK í Digranesi um helgina. Stelpurnar byrjuðu á föstudaginn með því að sigra Gróttu2 16-14. Þær héldu svo sigurgöngunni áfram í dag og sigruðu Gróttu1 13-5 og klára svo forkeppnina með stæl og lögðu HK 17-5. Þær eru því komnar í 1.deild.