Um helgina fer fram forkeppni 4.flokks karla. Bæði Haukaliðin kláruðu bæði alla leiki sína í dag. A liðið lék gegn ÍR og ÍBV í Austurbergi. Haukastrákarnir sigruðu ÍBV en töpuðu fyrir ÍR. Því þurftu þeir að stóla á að ÍR myndi sigra ÍBV og það gekk eftir. Þetta þýðir það að liðið spilar í 1.deild A liða í vetur. B liðið lék gegn ÍR og Gróttu á Strandgötu. Haukastrákarnir sigruðu báða leikina með miklum mun. Það þýðir að þeir leika í 1.deild B liða í vetur.