Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokka Handknattleiksdeildar Hauka verður fimmtudaginn 18. maí kl. 17:00-18:30

Komið verður saman í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum.

Dagskrá verður með hefðbundnum hætti, veittar verða viðurkenningar hjá yngri flokkunum og síðan verða veitingar í boði deildarinnar, grillaðar pylsur og safi að hætti hússins. Þetta er lokahnykkurinn á velheppnuðu keppnistímabili.

LEIKMENN ÚR MFL. KARLA OG KVENNA MÆTA OG AFHENDA VIÐURKENNINGAR FYRIR GÓÐAN ÁRANGUR OG ÁSTUNDUN Í VETUR

Mætum öll, ungir sem aldnir. Haukafélagar, takið ykkar nánustu með, því hvað er skemmtilegra en lokahóf yngstu kynslóðarinnar.

Með Haukakveðju,
Stjórn og þjálfarar