Fylkir-Haukar mfl.karla
Strákarnir okkar unnu öruggan sigur á Fylki í kvöld, lokatölur 26-29.
Haukar höfðu leikinn í hendi nánast allan tímann. Fylkir skoraði þó fyrsta markið en Haukar næstu fjögur, staðan 1-4. Fylkir jafnar 4-4 en næstu sex mörk voru Hauka og staðan 4-10. Heimamenn löguðu stöðuna fyrir leikhlé í 12-15.
Í seinni hálfleik héldu okkar menn yfirleitt þriggja til fimm marka forystu. Fylkir minnkaði í eitt mark, 24-25 en komust ekki nær. Haukar bættu í og gerðu út um leikinn.
Strákarnir okkar voru ekki að sýna neinn glimrandi leik, menn voru eðlilega hálf stirðir eftir langt hlé. Þeir sýndu þó ágætis tilþrif inná milli og gerðu það sem til þurfti og unnu góðan sigur.
