Stelpurnar okkar gerðu góða ferð í Kópavoginn er þær unnu tvö dýrmæt stig með sigri á HK, lokatölur 28-31.
Haukastelpur áttu afar slakan dag og voru rosalega lengi í gang, komið var fram i síðari hálfleik þegar þær loksins rumskuðu. HK hafði forystuna í fyrri hálfleik og staðan var 14-10 þegar flautað var til leikhlés. Haukar jöfnuðu 17-17 þegar um tíu mín. voru liðnar af síðari hálfleik og eftir það leiddu þær leikinn og og lönduðu góðum sigri.