Stelpurnar okkar unnu stórglæsilegan sigur á FH í 8-liða úrslitum SS bikarsins í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur 21-36.
Það tók Hauka nokkrar mínútur að komast í gang. FH skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og Haukaáhorfendur fengu smá skjálfta og höfðu áhyggjur að sama byrjun og á þriðjudaginn væri að endurtaka sig. En stelpurnar okkar voru aldeilis ekki á því, þær fundu fljótt taktinn jöfnuðu 3-3 og síðan 3-4 og eftir það héldu þær forystu. Þær juku forskotið jafnt og þétt og í hálfleik var staðan 7-15.
Í seinni hálfleik héldu Haukar áfram sama leik, sóknin gekk fínt, vörnin var frábær sem skilaði fjölda hraðaupphlaupa og FH sá aldrei til sólar, slíkir voru yfirburðir hjá stelpunum okkar.
Glæsilegur sigur og frábært að tryggja sætið í 4-liða úrslitum