Eins og allir (ættu að) vita er stórleikur hjá strákunum á morgun þar sem þeir mæta Arhus í Baunalandi. Með í för er fríður hópur en um 50 manns fara gagngert út til þess að fylgjast með leiknum. Síðan eru einhverjar Íslendingar búsettir í Danmörku sem slást svo í hópinn og mynda öflugt stuðningsmannalið á pöllunum og ekki er vanþörf á því strákarnir ætla sér sigur og ekkert annað. Leikurinn er kl. 16:15 að staðartíma sem myndi útleggjast sem 15:15 að íslenskum. Að öllu jöfnu ætti leikurinn að vera sýndur í beinni á Sýn en það hefur ekki verið staðfest.