Haukar til Danmerkur
Jæja, þá er allt að skýrast varðandi Danmerkurferðina.
Flogið verður til Kaupmannahafnar, fimmtudaginn 3. nóv. kl. 14.15 og heim mánudaginn 7. nóv. kl. 13.20 að staðartíma. Gist verður á Hótel Square (sama hotel og í fyrra) sem er mjög gott hótel á frábærum stað á Ráðhústorginu.
Á laugardeginum fer rútan af stað kl. 11:0 til Arhus og til baka heim (til Köben) um kl. 18:00 eða strax að leik loknum.
Verð á flugi með öllum sköttum er kr. 32.790.
Verð á hótelinu í 4 nætur í 2ja manna herb. kr. 24.000 á mann.
Þeir sem ætla með vinsamlega sendið póst til Árna Hermanns á arni@haukar.is Við verðum að fá svör sem allra fyrst, þar sem bæði hótel og flugsæti eru takmörkuð. Sendið upplýsingar um hvaða pakka þið takið, þ.e. flug, hótel, rúta.
