Strákarnir okkar

Það er alltaf gaman að vera Haukari en þessa dagana er það hreint út sagt magnað.
Stelpurnar okkar sýndu snilld sína fyrir viku og í gærkvöld var komið að strákunum okkar, þá sýndu þeir og sönnuðu að þeir eru langbestir. Þeir unnu sama afrek og stelpurnar okkar, unnu úrslitakeppnina 7-0 og eru Deildarmeistrarar 2005 og Íslandsmeistarar 2005. Stórglæsilegur árangur. Þeir hafa nú unnið Íslandsmeistaratitilinn þrjú ár í röð og fimm sinnum á síðustu sex árum. Stórkostlegur árangur hjá frábæru liði.

Leikurinn í gærkvöldi var alveg magnaður. Kannski ekki besti bolti sem sést hefur, enda spennan mikil og mikið undir. Vörnin hjá strákunum okkar var rosalega, hreint frábær mestan hluta leiksins og Birkir Ívar í banastuði fyrir aftan. Sóknarleikurinn var ekki alveg að ganga upp og menn ekki að nýta góð færi, en þeir gerðu það sem til þurfti.

Sigurinn í gær var öruggur og höfðu Haukar frumkvæðið frá fyrstu mínútu. Þeir skoruðu fyrsta markið og staðan var fljótt 4-1. ÍBV rétti úr kútnum og minnkaði en náðu aldrei að jafna, Haukar voru alltaf einu til tveimur mörkum yfir. Stuttu fyrir leikhlé var staðan 8-7 en þá bættu strákarnir okkar í og juku muninn og var staðan í hálfleik 13-9.

Strákarnir okkur mættu einbeittir til síðari hálfleiks og ljóst að þeir ætluðu að halda áfram að keyra og náðu mest sjö marka forskoti 18-11. Þá kom kafli þar sem okkar menn fuku útaf ótt og títt og voru á kafla 3 útispilarar inná. IBV minnkaði síðan í eitt mark 19-18 og fékk nokkur tækifæri til að jafna en tókst ekki, sem betur fer og strákarnir okkar keyrðu af stað og juku aftur forskotið jafnt og þétt í 27-20 og eftir það varð ekki aftur snúið. Úrslitin 28-24 og titilinn var okkar.

Fyrir leikinn var ÍBV komið uppað veggnum fræga, staðan í einvíginu 2-0 fyrir Hauka eftir tvo jafna og tvísýna leik. En í leiknum í gær áttu þeir í raun aldrei möguleika, þeir reyndu hvað þeir gátu en mættu einfaldlega ofjörlum sínum.

Strákarnir okkar mættu mjög einbeittir til leiks, þeir voru með kollinn í lagi og stemmingin í liðinu var frábær. Allt var lagt undir til að klára dæmið heima á Ásvöllum, baráttan og leikgleðin skilaði sér til áhorfenda sem skemmtu sér hið besta. Það var ljóst frá byrjun að strákarnir okkar ætluðu að klára dæmið. Þeir stóðu við stóru orði og tryggðu að “Dollan” er ennþá heima á Ásöllum þar sem vel fer um hana.

Við þökkum okkar frábæru stuðningsmönnum fyrir dyggan stuðning, án ykkar hefði þetta ekki verið hægt. Eins þökkum við ÍBV fyrir skemmtilega úrslitarimmu eða “partíið” eins og þeir kalla það. Þarna mættust tvo bestu lið landsins og sýndu hversu frábær íþrótt handboltinn er. Það er sárt að tapa en silfur er aldeilis ekki svo slæmt.

Þeir sem fá mestu þakkirnar eru auðvitað strákarnir okkar. Þeir sýndu á glæsilegan hátt að Haukar eiga besta handknattleikslið landsins.
Til hamingju strákar, þið eruð alltaf mestir, bestir og flottastir. Þið eru ÍSLANDSMEISTRARAR 2005.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…