Haukar-ÍBV úrslit kvenna

Hann var glæsilegur sigurinn hjá stelpunum okkar á Ásvöllum í dag er þær unnu ÍBV 22-19 í fyrsta leiknum í úrslitaeinvíginu.

ÍBV skoraði fyrsta markið og var það eina skiptið sem þær voru yfir í leiknum. Það tók stelpurnar okkar um þrjár mínútur að jafna 1-1 og smá saman juku þær svo forystuna og eftir rúmlega 10 mín. leik var staðan 6-2 og 10-5 eftir um 20 mín. Þá slaknaði á vörninni og ÍBV skoraði næstu þrjú mörk og staðan orðin 10-8. Stelpurnar okkar löguðu aðeins stöðuna og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 12-9.

Í seinni hálfleik náðu Haukar mest 4ra marka forystu en yfirleitt var munurinn þetta tvö til þrjú mörk. ÍBV náði að minnka í eitt en komst aldrei nær. Þegar rúmar fimm mín. voru til leiksloka var staðan 19-18 en þá bættu stelpurnar okkar aðeins í og lönduðu glæsilegum sigri.

Þrátt fyrir frábæran sigur voru stelpurnar okkar ekki að spila toppleik. Vörnin var fín í byrjun sem skilaði góðum hraðaupphlaupum og sóknin gekk einnig allt í lagi. Undir lok fyrri hálfleiks fór vörnin að opnast og sóknin að hiksta. Það eru ekki margir leikir í vetur þar sem liðið hefur aðeins skorað 22 mörk. En málið snýst um að skora fleiri mörk en andstæðingurinn og það gerðu stelpurnar okkar í dag og það skilaði eins og áður sagði glæsilegum sigri.

Næsti leikur í einvíginu verður á þriðjudag kl. 19:40 í Vestmannaeyjum og hvetjum við alla Hauka til að fjölmenna til eyja og hvetja stelpurnar okkar til sigurs.
ÁFRAM HAUKAR