Strákarnir okkar unnu góðan sigur á Víkingum á Ásvöllum í dag, lokatölur 32-26.
Leikurinn var jafn í upphafi en í stöðunni 4-4 sigu okkar menn rólega framúr og í hálfleik höfðu þeir sex marka forskot 16-10.
Fljótlega í byrjun síðari hálfleiks var munurinn orðinn 9 mörk 20-11 og eftir það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn lenti. Gestirnir náðu að minnka í 5 mörk en komust aldrei nær og öruggur sigur okkar manna í höfn.
Vörnin var þétt allt fram undir síðustu mínútur leiksins og hraðaupphlaupin skiluðu sér eftir því. Þórir Ólafs átti frábæran leik og var markahæstur með 12 mörk.