Körfustúlkur í Höllinni
Úrslitaleikurinn í Bikarkeppninni í körfubolta fer fram sunnudaginn 13. feb kl. 13.30 og leika Haukar gegn Grindavík í mfl. kvenna.
Mikið húllumhæ verður á Ásvöllum frá kl.11.00 á sunnudag, andlitsmálun og fleira.
Rútuferðir verða frá Ásvöllum kl 12.30 í Laugardalshöllina.
Nú í ár eru það körfustelpurnar sem sjá um Haukadag í Höllinni og við hvetjum alla Hauka að styðja Haukastelpurnar.
Góða skemmtun og bikarinn á Ásvelli.
