UBK : 28 – Haukar2 : 36

Rauðu bomburnar mættu í Smárann þar sem verkefni okkar var leikur gegn UBK. Salsha stemmnig í okkar hóp þar sem leikdagur var jú laugardagur. Skothríðin hófst stax frá upphafi og forustan var okkar. Flugmaðurinn (B. Frosta) var settur í búrið og lokaði hann því sem hann ætti það skuldlaust. Bræðurnir Gústi og Sigurjón bruggðu á bræðra trix í sókn er kennd voru í sveitum landsins snemma á níunda áratug síðustu aldar. Staðan í hálfleik var okkur gríðar hliðholl enda 12-20.
Gerðar voru taktískar breytingar í þeim seinni Pétur Vilberg var settur á línu og Raggi var settur í búrið fræga. Menn héldu áfram að gleðja áhorfendur sem höfðu lagt leið sína á völlinn. Hvert sirkus markið leit dagsins ljós, reyndar ekki hjá öllum Einar Jónsson :þ Jason var með nokkra löðrunga eins átti Óskar Ármanns nokkur ofbeldisfull skot á markið. Liðseigandinn tók hringinn í net og DJ-Júlli sett-ann af vítalínunni.
Þegar sest var niður í leikslok var 5. sigur liðsins í jafn mörgum leikjum staðreynd, 28-36.