Stjarnan-Haukar mfl.kvenna

Stelpurnar okkar unnu stórsigur 28-20 á Stjörnunni í Garðabænum í dag. Þetta var síðasti leikurinn á árinu hjá þeim og kláruðu þær hann með stæl.

Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en undir lok hans náðu stelpurnar okkar góðri forystu og var staðan í hálfleik 9-12 fyrir Hauka. Í síðari hálfleik héldu þær áfram góðum leik og náði Stjarnan aldrei að ógna forystunni. Stelpurnar okkar juku forskotið og unnu glæsilegan átta marka sigur.

Þær sitja sem fastast á toppi deildarinnar þar sem vel fer um þær.