Haukar-Sävehof, Meistaradeildin

Leik strákanna okkar við Sävehof í Meistaradeildinn í dag lauk með jafntefli 35-35.
Fyrirfram var vitað að leikurinn yrði mjög erfiður. Svíarnir eru með geysilega sterkt lið og marga landsliðsmenn.

Strákarnir okkar voru styrðir í upphafi leiks og það tók þá nokkrar mínutur að komast í gang. Sävehof skoraði fyrsta markið, Haukar jöfnuðu fljótt en síðan höfðu svíarnir yfirhöndina þar til Haukar jöfnuðu 6-6. Þá kom kafli þar sem hvorugu liðinu tókst að skora og var 6-6 í allnokkurn tíma, en loks kom sjöunda markið hjá Haukum og voru þeir með forystuna það sem eftir var hálfleiks. Í leikhléi var staðan 19-15 og útlitið mjög gott.
Í seinni hálfleik varð fljótt fimm marka munur 21-16 og héldu Haukar þessum fimm mörkum í nokkurn tíma. Sävehof minnkaði í eitt 25-24 en Haukar náðu aftur góðu forskoti 30-26 og þegar stutt var til leiksloka var staðan 33-30 og 35-32. Gestirnir skorðu síðan þrjú síðustu mörkin og náðu að jafna leikinn með góðri hjálp dómaranna.

Dönsku dómararnir voru ekki vinsælir á Ásvöllum í gær. Þeir byrjuðu klúðrið í gær með því að ná ekki flugi til landsins þannig að breyta varð leiktímanum. Í dag misstu þeir algjörlega tökin á leiknum síðustu 10-15 mín. og voru ansi hliðhollir þeim sænsku. Klúður sem ekki á að sjást.

Strákarnir okkar geta gengið stoltir af velli og eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna. Þeir voru að spila við topplið í sænskum handbolta og var leikurinn í raun sigur fyrir íslenskan handbolta. Þeir voru grátlega nærri sigri en dönsku dómaranir gáfu Svíum annað stigið.

Leikurinn var meiriháttar skemmtun, mjög góður og voru strákarnir okkar að spila frábæran bolta, sérstakalega í sókninni sem var á köflum alveg frábær.