Í nótt vorum við flest enn í draumaheim þegar strákarnir okkar voru komnir á stjá.Þeir lögðu af stað að heiman fyrir fimm í morgun og lá leiðin fyrst til Keflavíkur og þaðan var flogið til Stokkhólms. Frá Stokkhólmi fljúga þeir til Parísar og er áætluð lending þar kl. 16:35.
Leikurinn við Creteil er á morgun, föstudag kl. 20:30 að staðartíma eða kl. 18:30 að íslenskum tíma. Við Haukar ætlum að hittast á Ásvöllum og horfa á leikinn saman og hafa gaman, en útsending á Sýn hefst kl. 18:20. Mætum öll og hvetjum strákana okkar í gegnum sjónvarpið og sendum baráttustrauma yfir hafið.
Creteil-Haukar á Sýn á Ásvöllum kl. 18:20 á föstudag. Áfram Haukar.