Haukar-Neerpelt = Meistaradeildin

Strákarnir okkar kláruðu dæmið í kvöld með sigri á Sporting Neerpelt 28-25.
Leikurinn var lítið fyrir augað, sigurinn öruggur frá fyrstu mínútu þó svo gestirnir hafi skorað fyrsta markið. Leikurinn var jafn í byrjun í 5-5 en þá sigu okkar menn fram úr og staðan í hálfleik var 16-11. Mest náðu þeir 10 marka forskoti 27-17 en síðan slökuðu þeir all verulega á og gestirnir söxuðu á forskotið en sigurinn var aldrei í hættu.

Draumurinn hefur aftur ræst og Haukar eru komnir í Meistaradeild Evrópu. Þar spila þeir í F-riðili með þýska stórliðinu Kiel, frændum okkar í Savehof og vinum okkar í Creteil. Það er ljóst að framundan verða annasamar vikur en Meistaradeildin er spiluð á sex helgum í röð í október og nóvember og því verður mikið álag á liðinu. En ánægjan sem þetta gefur fær menn til að gleyma öllu erfiðinu.

Framundan er veisla fyrir alla handboltaunnendur og menn ættu ekki að láta þessa leiki framhjá sér fara, mæta á leikina og styðja íslenskan handknattleik. Við Haukar vitum hversu mikilvæg þátttaka í alþjóðlegum mótum er fyrir handboltann í landinu, sem og fyrir félagið okkar og ekki síður fyrir strákana sjálfa. Haukar eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að efla þjóðaríþrótt okkar Íslendinga og vonumst við eftir góðum stuðningi landans.

Hér kemur leikjaplanið svo allir Haukar og aðrir stuðningsmenn geta tekið frá réttu dagana.

9/10 okt. Haukar – Kiel
16/17 okt. Creteil – Haukar
23/24 okt. Haukar – Savehof
30/31 okt. Haukar – Creteil
6/7 nóv. Kiel – Haukar
13/14 nóv. Savehof – Haukar

TIL HAMNINGJU STRÁKAR MEÐ MEISTARADEILDINA – HAUKAR ERU JÚ ALLTAF BESTIR !