Strákarnir okkar unnu öruggan sigur 42-30 á belgísku meisturunum Sporting Neerpelt á Ásvöllum í dag.
Leikurinn var jafn í byrjun, gestirnir skoruðu fyrsta markið, náðu síðan 2ja marka forystu 3-1 en strákarnir okkar voru fljótir að jafna 3-3 og aftur 4-4 og eftir það héldu þeir forystunni. Þegar um 10 mín voru eftir af fyrri hálfleik keyrðu strákarnir okkar upp hraðann og breyttu stöðunni úr 11-10 í 22-12 í hálfleik. Eftir það var nánast formsatriði að klára leikinn sem endaði eins og fyrr segir 42-30.
Markahæstur var Þórir með 11 mörk. Ásgeir Örn með 7, Jón Karl 6, Andri Stefan 5, Gísli Jón 4, Vignir 3, Pétur M. 2, Gunnar Ingi 1, Halldór 1, Pétur Þ. 1, Vigfús 1.
Þó svo sigurinn hafi verið öruggur í dag, þá var þetta bara fyrri hálfleikur en seinni leikur liðanna verður á Ásvöllum á morgun kl. 20:00. Það virðist auðvelt verkefni fyrir strákana okkar að klára hann en við vitum að ekkert er öruggt í boltanum og ekki þýðir fyrir þá að mæta of værukærir. Þeir þurfa áfram á stuðningi áhorfenda að halda og hvetum við alla til að mæta á Ásvelli og styðja við bakið á þeim og hjálpa þeim að klára dæmið.
Mætum á Ásvelli kl. 20.00 á morgun sunnudag. Meistaradeildin er innan seilingar.