Úrslitakeppnin hjá strákunum hefst á morgun, þriðjudag. Strákarnir okkar eiga sinn fyrsta leik í 8-liða úrslitum við lið ÍBV og hefst leikurinn kl. 19:15 á Ásvöllum.
Við vonum að allir hafi átt góða páskahelgi og séu tilbúnir í slaginn. Strákarnir okkar, nýkrýndir Deildarmeistarar, mæta örugglega tilbúnir til leiks og ætla sér ekkert annað en sigur. Við hvetjum alla stuðningsmenn Hauka til að fjölmenna og styðja strákana okkar til sigurs.
Áfram Haukar