Yfirlýsing Hkd. Hauka og Viggós Sig

Yfirlýsing HKD. Hauka og Viggós Sigurðssonar

Í framhaldi af atburðum síðustu daga hafa formaður HKD. Hauka, Eiður Arnarson og Viggó Sigurðsson komist að sameiginlegri niðurstöðu varðandi starfslok Viggós hjá Haukum.

Samkomulag er um að Viggó láti nú þegar af stöfum sem þjálfari meistaraflokks Hauka.

Síðastliðin fjögur ár hefur verið gott samstarf milli aðila og sýnir árangur liðsins það. Sú ákvörðun að fá annan þjálfara til liðsins fyrir næsta keppnistímabil er eitthvað sem aðilar eru ekki sammála um og verður svo að vera og því fór sem fór. Hvorugur aðili telur rétt að halda áfram umræðu um þetta mál á opinberum vettvangi og telst málinu lokið af beggja hálfu.

Haukaliðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár og hefur Viggó með sýnum störfum átt stóran þátt í þeirri velgengni, ekki síður en leikmenn og aðrir þeir sem starfað hafa í kringum liðið, að ógleymdum stuðningsmönnunum.

Aðilar vilja að lokum þakka samstafið á liðnum árum og óska þeir hvor öðrum alls hins besta í framtíðinni.

EIÐUR ARNARSON, FORMAÐUR HKD. HAUKA
VIGGÓ SIGURÐSSON