Valur-Haukar mfl.kvenna

Stelpurnar okkar sóttu tvö stig á Hlíðarenda í gær er þær unnu Val 18-19 í skemmtilegum leik.
Þær byrjuðu leikinn vel og náðu strax forystunni. Valur náði þó að jafna 6-6 en komust aldrei framúr og staðan í hálfleik var 8-10. Í seinni hálfleik náðum við mest 4 marka forskoti, heimamenn náðu að minnka munninn en stelpurnar okkar héldu haus og hluta að launum tvö dýrmæt stig.

Vörnin var frábær og Kristina góð í markinu. Sóknarleikurinn hikstaði dálítið, en gekk þó nokkuð vel miðað við að Harpa og Ramune voru teknar úr umferð allan leikinn.

Glæsilegur sigur stelpur.