EVRÓ – Mikið liggur við
Þó Haukar hafi byrjað handknattleiksvertíðina sl. sunnudag með því að innbyrða fyrsta titilinn sem í boði er þá hefst vertíðin af alvöru á laugardaginn kl.16:30 að Ásvöllum þegar þeir mæta CD S. Bernardo frá Portúgal. Um er að ræða geysilega mikilvægan leik, sem skiptir íslenskan handbolta miklu máli. Nái Haukar hagstæðum úrslitum gegn Portúgölunum þá hafa Hafnfirðingarnir tryggt sér þátttöku í Champions League sem er meistarakeppni Evrópu og svipar sú keppni til meistarakeppninnar í knattspyrnu þar sem sterkustu liðin keppa í riðlum fyrir útsláttakeppnina í mars.
Þegar hefur verið dregið í riðla og lenda Haukarnir gegn stórliðunum Barcelona og Magdeburg ásamt liðinu Vardar Skopje frá Makedóníu. Allt bendir til að Haukamenn muni ná takmarki sínu og tryggja sér þátttöku þó ekkert sé gefið í þeim efnum. Andstæðingarnir Sao Bernardo koma úr efstu áhugamannadeildinni í Portúgal. Ágreiningur kom upp í vor um þátttöku og réttindamál tengd meistaradeildinni sem endaði með þvi að handknattleikssamband Portúgals sendi sigurvegara áhugadeildarinnar til keppni en ekki meistarana sjálfa vegna fyrrgreinds ágreinings.
Sigri Haukar má gera ráð fyrir annasömum vetri fyrir þá, því ef allt gengur eftir, munu Haukamenn spila átta leiki í október einum í deild og meistarakeppninni. Meistarakeppnisriðillinn hefst 11. eða 12. október gegn Barcelona heima, síðan heimsækja Haukamenn Alfreð Gíslason í Magdeburg 18. okt. Að því loknu kemur hlé til 8. nóv þegar Skopje frá Makedóníu heimsækir Ásvelli. Því næst taka Haukamenn á móti Magdeburg á Ásvöllum þann 15. nóv. Viku síðar 22. nóv spila síðan Haukamenn í Barcelona og að lokum í Makedóníu 29. nóv. Þetta eru engin smálið og til mikils að vinna að komast í Meistaradeildina og veitir því ekki af stuðningi á Ásvöllum á laugardaginn.
Haukamenn og aðrir handboltaunnendur eru hvattir að fjölmenna á Ásvelli á laugardaginn kl. 16.30 til þess að tryggja hagstæð úrslit. Mikið liggur við.
