Á þriðjudaginn hefst barátta Hauka og ÍR um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Bæði lið hafa fengið um viku hvíld eftir skemmtilega og spennandi leiki í 4ra liða úrslitum og ættu að koma tilbúin í slaginn og ætla örugglega bæði að sigra og ná þar með forystu í einvíginu.
Við Haukar mætum í komandi leiki full tilhlökkunar, við vitum hvað þetta er rosalega gaman, við ætlum að skemmta okkur og hafa mikið gaman. Við fyllum Ásvelli af rauðum og rjóðum Hauka-áhorfendum og styðjum vel við bakið á strákunum okkar. Þó margir tali um að Haukar séu stóra liðið í þessu einvígi og séu hoknir af reynslu, þá vitum við öll að eitt það skemmtilegast við íþróttir er að enginn veit úrslitin fyrirfram. Við vitum líka að áhorfendur geta haft mikil áhrif og góður stuðningur getur fleytt liðinu yfir hvað sem er. Strákanir okkar mæta örugglega tilbúnir og leggja allt undir og það skulum við áhorfendur líka gera og við hvetjum strákana á jákvæðan hátt, sama á hverju gengur. Margir bíða sjálfsagt spenntir eftir að geta klappað, stappað, öskrað, nagað neglur og reytt hár sitt. Við búum til góða stemmingu og sendum hana inná völlinn til strákanna okkar.
Það er skyldumæting hjá öllum Haukum á þessa leiki, heimaleikina á Ásvöllum og eins í Breiðholtið. Tökum þátt í gleðinni og hjálpum strákunum okkar að koma með bikarinn heim á Ásvelli, þar á hann heima.
Við bjóðum ÍR-inga velkomna á Ásvelli. Þeir hafa ekki unnið titilinn í 57 ár og ég held að allir geti verið sammála um að það er langur tími, við Haukar þekkjum það, en við Haukar erum líka sammála um að það er í fínu lagi að ÍR bíði í nokkur ár í viðbót, því við ætlum okkur dolluna í ár og við munum hefna ófara forfeðra okkar fyrir 57 árum.
Í lokin hvetjum við einnig alla aðra handboltaunnendur að mæta á leikina og sjá tvö bestu lið landsins Hauka og ÍR kljást um Íslandsmeistaratitilinn.
Góða skemmun – Áfram Haukar.