Haukar-Víkingur ESSO deild karla
Strákarnir okkar gjörsigruðu lið Víkings á Ásvöllum í kvöld 38-16 og byrjuðu aldeilis vel eftir langt frí. Gífurlegur getumunur var á liðunum og leikurinn langt frá því að vera spennandi en strákarnir okkar héldu áhorfendum vakandi og skoruðu fjöldan allan af glæsilegum mörkum.
Haukarnir byrjuðu af krafti og gáfu tóninn og komust í 10-0. Gestirnir áttu ekkert svar við öflugum leik okkar manna. Ótrúlegar tölur sáust á klukkunni, 14-2, 18-3 og 19-6 sem voru hálfleikstölur. Í síðari hálfleik héldu yfirburðirnir áfram, 21-7, 29-12, 33-15 og lokatölur 38-16.
Strákarnir voru allir að spila vel og bíðum við spennt eftrir næsta leik. Landsliðsmaðurinn okkar Aron Kristjánsson hvíldi að mestu á bekkunum, fékk aðeins að koma inná og leika sér. Ungu strákarnir fengu að spreyta sig og Gísli Jón Þórisson (Burkna og Beggu) lék sinn fyrsta alvöru meistaraflokksleik og opnaði markareikninginn og skoraði glæsilegt mark. Birkir Ívar stóð mestan hluta leiks í markinu og varði ótrúlegan fjölda skota.
