Ademar – Haukar

Jæja nú er leikurinn byrjaður og voru strákarnir víst vel stemmdir. Staðan verður sett inn í þessa frétt jafnóðum svo þið getið fylgst með, það eina sem þarf að gera er að endurhlaða síðuna. Það er hægt að gera með því að smella á F5 takkann á lyklaborðinu.

Byrjar vel,
3 – 3 eftir 10mín

Nú sendum við strákunum sterka strauma því ekki er það vænlegt núna,
12 – 6 eftir 21mín

14 – 8 eftir 25mín

Í hálfleik er staðan 16 – 12
Byrjunarliðið hefur verið inná mestallan leik þ.e. Sasha(1 mark), Keli, Jason, Ásgeir, Robertas(6 mörk) og Aron(4 mörk). Síðan fór eitt mark framhjá fararstjórunum svo magnað var það :). Bjarni er búinn að taka 7 bolta og búinn að spila allan leikinn. Þetta lið er víst alveg ótrúlega gott og spilar glimrandi vel. Dómararnir eru bara eins og gengur í þessari keppni, betri ef eitthvað er. Annars lýtur þetta ágætlega út við eigum góða möguleika, tókum góðan sprett fyrir hlé skoruðum 4 mörk á móti 2 frá þeim spænsku, þannig að við höldum okkar striki og sendum fleiri strauma í seinni hálfleik.

Þá hefst seinni hálfleikurinn með látum,
21 – 15 eftir 9mín

22 – 17 eftir 15mín

Greinilega mjög kaflaskiptur leikur, vonandi eigum við síðustu 8mínúturnar,
27 – 19 eftir 22mín

27 – 20 eftir 25mín

Lokatölur 29 – 21 endaði svo leikurinn sem er heldur mikið. Strákarnir voru eiginlega sjálfum sér verstir en auk þess voru leikmenn Ademar ótrúlega góðir. Bestir okkar manna voru Aron, Robertas og Sasha. Birkir og Bjarni skiptu leiknum bróðurlega á milli sín og voru með saman í kringum 15 bolta og sitthvort vítið. Þá er bara að farað undirbúa heimaleikinn og vonandi verða úrslitin okkur hagstæðari þá. Það er allt hægt.

Robertas 9
Aron 5
Sasha 3
Ásgeir 1
Jón Karl 1 (víti)
2 flugu framhjá riturunum.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…