Pistill frá León.

Það voru þreyttir Haukamenn sem skriðu inn á Hótel Conde Luna í León kl. 01:15 að staðartíma í nótt sem leið. Ferðalagið gekk fínt en 5 tíma stopp í London og 4 tíma rútuferð frá Bilbao til León tók sinn toll. Viðtökur og allur aðbúnaður hér hefur verið til fyrirmyndar. Strákarnir æfðu í höllinni fyrr í dag, laugardag. Nú sitja þeir ásamt þjálfurum yfir myndbandi af Ademar liðinu sem Heiðmar Felixsson útvegaði okkur og kunna Haukamenn honum bestu þakkir fyrir. Höllinn sem leikið verður í, heimavöllur Ademar León, tekur 6.500 manns í sæti og má búast við ca. 4000 á morgun.
Í kvöld munu strákarnir borða saman kraftmikinn kvöldverð, grænmetissúpu, nautasteik og ávexti. Fararstjórn mun á meðan sinna hefðbundnum skyldustörfum sem eru í kvöld að borða kvöldverð í boði forseta félagsins þar sem dómurum er líka boðið.
Bæjarblað León birti heilsíðu frétt í dag um leikinn á morgun. Þar bar mikið á umsögn um að Halldór Ingólfsson yrði ekki með vegna barneignarfrís og birtu þeir stóra mynd af Aroni sem þeir töldu greinilega vera Halldór! Einnig eru þeir búnir að finna nýtt nafn á Bjarna Frosta en hann er nefndur „gullskalli“ í greininni og greinilegt að þeir hræðast Bjarna og eru vangaveltur um að hann hefji leikinn á morgun. Það kemur líka fram að Birkir sé eiginlega búinn að velta þessu „fræga“ markmanni úr sessi með góðri frammstöðu. Fararstjórn fékk litla umföllun í blaðinu en í því er verið að vinna og mun birtast ítarleg grein um það vaska lið í þriðjudagsblaði „El diario de León“.
Gaman er að segja frá því að félagið Ademar León byggir á svipuðum grunni og Haukar en það var stofnað af Sr. Friðriki þeirra León manna.
Veðrið hér minnir helst á Hafnfirskt veður mínus gamla góða vindinn okkar. Sem sé, allt gott að frétta og strákarnir heilir og nú vonum við bara að leikurinn á morgun verði okkur í hag en það er ljóst að lið León er geysilega öflugt og heimavöllur þeirra mikil ljónagryfja og verðum við að fá góðan stuðning næstu helgi á Ásvellum til að toppa það.
Með í för hér eru tveir stuðningsmenn sem núna eru nefndir „men in red“ af gárungunum á svæðinu eftir að þeir fjárfestu í rauðum jakkafötum í London og létu sauma Haukamerkið í barminn. „Men in red“ er réttnefni því þeir eru ekki bara rauðklæddir heldur lita þeir líka bæinn rauðan og munu „El diario de León“ birta um þá ítarlega umfjöllun í miðvikudagsblaðinu. Þetta eru miklir greifar og rausnalegir. Til að mynda tóku þeir alla 9. hæðina fyrir sig á meðan liðið og fararstjórn lætur sér 4. hæðina duga.
Bestu kveðjur úr fundarherbergi fararstjórnar en meira verður ekki skrifað að sinni því okkar bíður heitur pottur og nudd fyrir kvöldið.
Fararstjórar og innra eftirlit.
Sigurjón, Daníel og Guðborg.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…