Ademar-Haukar Evrópukeppnin
Strákarnir lögðu af stað núna í morgun til Leon á Spáni í leikinn við Ademar í Evrópukeppninni.
Upp úr klukkan sex fóru þeir héðan úr Hafnarfirði til Keflavíkur og fljúga þaðan til London. Í London bíða þeir fram eftir degi og fljúga þaðan rétt fyrir klukkan sex . Áætluð lending í Bilbao eru um hálf níu. Þá er sest upp í rútu og keyrt til Leon sem eru um 4 tíma akstur. Ættu þeir að vera komnir á hótelið um kl. eitt um nóttina.
Leikurinn er svo á sunnudaginn kl. 12.30 að staðartíma (kl. 11.30 að íslenskum tíma )
Við munum vera með fréttir hér á síðunni um stöðuna í leiknum svo endilega kíkið hér inn og sendið jafnframt góða strauma yfir hafið til strákanna.
Við Haukafélagar sendum strákunum bestu óskir um góða ferð og gott gengi í leiknum sem án ef verður mjög erfiður. Við vitum hvað strákarnir okkar geta og vonum að þeir nái að sýna allar sýnu bestu hliðar.
ÁFRAM HAUKAR
