Evrópukeppni Bikarhafa
Nú fer að styttast í leikina í Evrópukeppninni við Youth Union Strovolos frá Kýpur. Sá fyrri verður á föstudaginn kl. 20.00 og sá síðari á laugardaginn kl. 18.00. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum. Ekki vitum við mikið um styrkleika þeirra Kýpurbúa en eins og allir vita þá er enginn leikur unninn fyrirfram og verða strákarnir að leggja sig alla fram til að komast áfram. Þeir þurfa því, eins og alltaf, á stuðningi áhorfenda að halda og hvetjum við alla til að fjölmenna á leikina og styðja við bakið á íslenskum handknattleik.
Miðaverð fyrir fullorðna er kr. 800 á einn leik en kr. 1.000 á báða leikina. Fyrir börn kostar kr. 200 á einn leik en kr. 300 á báða leikna. Minnum einnig á að frítt er fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á þessa leiki, sem og alla aðra leiki hjá okkur.
