Víkingur-Haukar mfl.ka.
Stákarnir okkar gerðu góða ferð í höfuðborgina, er þeir unnu Víking 24-33 í Essó deildinni í kvöld. Heimamenn skorðu fyrsta markið úr víti og var það eina skiptið sem þeir voru yfir í leiknum. Staðan í hálfleik var 10-18 fyrir okkur. Leikurinn var frekar auðveldur fyrir okkar menn og sýndu þeir oft góðar fléttur í sókninni og lokuðu vörninni vel öðru hvoru, en misstu einbeitinguna þess á milli enda var mótstaðan ekki mjög mikil. Víkingsstrákarnir börðust þó af krafti en það dugði ekki til á móti okkar mönnum.
Þorkell var markahæstur með 7 mörk og Robertas Pauzuolis var með 6 í sínum fyrsta leik og eins opnaði Jason markareikningnn með sitt fyrsta mark í Essódeildinni.
