Valur-Haukar mfl.ka
Strákanir fóru í heimsókn í Valsheimilið í dag. Skemmst er frá því að segja að þeir töpuðu leiknum 31-25. Leikurinn skipti engu máli um stöðuna í deildinni. Haukarnir á toppnum og búnir að vinna deildarmeistaratitilinn. Fyrri hálfleikur var jafn og Valsmenn einu marki yfir í hálfleik. Í seinni háfleik slökuðu okkar menn á og Valsmenn skriðu framúr og voru 2 til 4 mörk yfir meiri part seinni hálfleiks.
