Haukar-ÍR mfl.ka.
Strákarnir okkar náðu að merja sigur á ÍR 23-22. Haukarnir voru þrisvar yfir í leiknum 1-0, síðan 22-21 og í leikslok 23-22. Seinni hluta síðari hálfleiks náðu strákarnir að rífa upp baráttu í vörninni með góðri hjálp dyggra stuðningsmanna og jafna og komast yfir og vinna stigin tvö. ÍR ingar börðust vel allan tímann en segja má að reynsla Haukanna hafi vegið þungt í lokin og skilað þeim sigrinum.
Markahæstir voru Halldór með 8 mörk og Rúnar 5. Hjá ÍR var Einar Hómsgeirs markahæstur með 7 mörk, öll í fyrri hálfleik.
Eins og menn vita var leikurinn ágóðaleikur fyrir söfnun Geðhjálpar. Fjölmargir Haukar í horni og fleiri greiddu aðgangseyri þrátt fyrir að vera með frían aðgang að leiknum. Kunnum við þeim og öðrum sem komu á völlinn bestu þakkir fyrir stuðning við gott málefni.
