Aðalfundurinn
Aðalfundur handknattleiksdeildar var haldinn í dag. Gekk hann vel fyrir sig, þrátt fyrir að flestir herramenn væru lúnir eftir erfiði gærkvöldsins. Ekki var mjög fjölmennt og engin hallarbylting var gerð. Þorgeir Haraldsson var einróma kosinn formaður áfram. Eins gáfu allir sem í stjórn voru, kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa og hlutu þeir allir kosningu.
