Haukar-Kolporter
Haukar unnu frábæran sigur á Kolporter frá Póllandi 33-27 og eru þar með komnir í þriðju umferð Evrópukeppninnar. Haukar byrjuðu betur, komust í 3-0 og 4-1, síðan jöfnuðu Kolporter 4-4, og við síðan í 8-4. Staðan í hálfleik var 18-11 fyrir okkur. Í seinni hálfleik voru Haukar alltaf með yfirhöndina og komust 8 eða 9 mörkum yfir. Leikurinn endaði eins og fyrr segir 33-27 fyrir okkur. Fyrri hálfleikur var frábær hjá Haukum, vörnin mögnuð en síðan hikstaði liðið aðeins bæði í vörn og sókn , en aldrei var spurning hvar sigurinn endaði. Þeir skorðuðu mörkin: Jón Karl 9, Aron 6, Halldór og Rúnar 5 hvor, Einar Örn 3, Aliaksandr og Þorvarður Tjörvi 2 hvor og Þorkell 1. Bjarni stóð í markinu fram í seinni hálfleik en þá tók Maggi Sigmunds við. Báðir vörðu þeir oft með tilþrifum. Hjá Kolporter voru Kliszczyk nr. 18 og Bielecki nr. 19 markahæstir með 8 mörk hvor og Gowin nr. 20 með 5. Þeir Bielecki og Gowin voru alveg rosalegar, yfir tveir metrar og þvílíkar þrumur frá þeim. En það var ekki nóg, Haukarnir voru miklu betri og unnu frábæran sigur. Dómaranir voru franskir og dæmdu mjög vel og er þetta eitt besta dómarapar sem dæmt hefur hjá Haukum í Evrópukeppninni til þess og eflaust eitt af bestu dómarapörum í Evrópu í dag. Áhorfendur voru vel með á nótum lengst af og þökkum við þeim stuðninginn.
Strákar, til hamingju með sigurinn, frábær árangur. Áfram Haukar.
