Kolporter-Haukar „Rapport“
Leikurinn endaði 29-29 eins og fyrr segir. Húsið var troðfullt, rúmlega 2.000 áhorfendur og mikil stemming. Strákarnir voru að spila góðan bolta nær allan leikinn, klikkuðu reyndar á nokkrum dauðafærum og 3 vítum. Pólverjarnir fóru að taka tvo úr umferð í lok leiks og þá fóru okkar menn aðeins úr takti. Dómgæslan var góð í fyrri hálfleik og fram í miðjan síðari, en þá breyttu dómararnir um gír og við tók algjör heimadómgæsla. Við vorum þarna 4 mörkum yfir, en við þetta komust Pólverjarnir aftur inní leikinn og söxuðu á forskot okkar.
Markaskor dreifðist tölvört, Aron var með 7 mörk, Einar Örn 5, Halldór 4, Rúnar 3, Þorkell, Siggi Þórðar, Tjörvi, Ásgeir Örn og Aliaksandr með 2 mörk hver. Bjarni stóð í markinu mestan hluta leiksins og varði vel, át þá algjörlega nokkrum sinnum.
Að ná jafntefli á útivelli við Kolporter er auðvitað alveg frábært. Þeir hafa ekki tapað Evrópuleik á heimavelli í fjölda ára.
Til hamingju Haukar og góða ferð heim.
Nú er bara að taka „vel“ á móti þeim í heimaleiknum sem verður á Ásvöllum næsta laugardag kl. 16.30.
P.S.
Strákarnir og kallinn með hattinn biðja kærlega að heilsa öllum og þakka góða strauma frá Íslandi.
