Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum
Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn.
Guðjón og Herborg, eiginkona hans, hafa
starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka áratugum saman og stuðningur þeirra
við starf deildarinnar er ómetanlegt. Guðjón sat í stjórn handknattleiksdeildar Hauka um
margra ára skeið, allt til dánardags.
Við fráfall Guðjóns er stórt skarð höggvið í hóp öflugustu stuðningsmanna Hauka.
Knattspyrnufélagið Haukar minnist Guðjóns með hlýju og þakklæti um leið og félagið sendir
Herborgu og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Guðjóns Ágústs Sigurðarsonar.
