Haukastrákar í landsliðsúrtökum

Andri Scheving er í U-20 ára landsliðinu.

Það verður mikið um að vera hjá ungum Haukastrákum aðra helgi en þá koma yngri karla landslið Íslands saman. Það eru fjölmargir Haukastrákar sem hafa verið valdnir í þessi verkefni en þeir eru.

U-20: Andri Scheving, Jason Guðnason og Orri Freyr Þorkelsson. Auk þess er uppaldni Haukastrákurinn Darri Aronsson sem spila nú með Aalborg Håndbold einnig í hópnum.

U-18: Jóhannes Damian Patreksson, Jökull Grétarsson og Jökull Hjálmarsson.

U-16: Kristófer Máni Jónsson, Magnús Gunnar Karlsson, Páll Þór Kolbeinsson, Alex Már Júlíusson, Mikael Andri Samúlesson og Steinar Logi Jónatansson. Auk þess eru uppöldnu Haukastrákarnir Jakob Aronsson sem spilar með Aalborg Håndbold og Guðmundur Bragi Ástþórsson sem spilar í Þýskalandi.

Einnig má geta þess að þessa sömu helgi verða Daníel Þór Ingason og Björgvin Páll Gústavsson að æfa og spila landsleiki við Svíþjóð með A-landsliði Íslands og Hákon Daði Styrmisson mun æfa með Afrekshóp karla sem er svokallað B-landslið.

Við óskum öllum þessum flottu Haukastrákum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…