Glæsilegur sigur á ÍBV

Björgvin lokaði markinu á kafla í seinni hálfleik. Mynd: VísirErnir

Það var sannkallaður stórleikur hja strákunum í meistaraflokki í handbolta í gær þegar að Eyjamenn komu í heimsókn. Þessi lið hafa marga hildina háð síðustu ár og því ekki við öðru að búast en að framhald yrði á því.

Það voru gestirnir sem byrjuðu mun betur en eftir um 10 mínútur voru Eyjamenn yfir 6 – 0. Þá tók Gunnar þjálfari leikhlé sem virtist svínvirka því að Haukamenn skoruðu 8 mörk í röð en staðan eftir 20 mínútur var 9 – 7 Haukum í vil og svo þegar 5 mínútur voru eftir voru þeir komnir í 12 – 9. Það voru svo Eyjamenn sem skoruðu síðustu 3 mörk hálfleiksins og staðan því jöfn í hálfleik 12 – 12.

Haukmenn mættu grimmir til seinni hálfleiks og skoruðu þeir fyrstu 3 mörk hálfleiksins en í stöðunni 17 – 15 urðu Haukamenn enn grimmari og skoruðu þeir 7 mörk í röð og staðan þegar að korter lifði leiks 24 – 15.  Á þessu kafla varði Björgvin Páll hvert færið á eftir öðru og dróg hann vígtennurnar úr Eyjamönnum en síðustu 15 mínúturnar voru því formsatriði fyrir Haukamenn sem unnu að lokum flottan 29 – 23 sigur.

Eins og í síðasta leik var það vörn og markvarsla sem skóp sigurinn en maður leiksins var Björgvin Páll en hann varði 50% þeirra skota sem á hann komu í leiknum auk þess sem að hann skoraði 1 mark. Markahæstur Hauka í leiknum var Daníel Þór með 8 mörk og næstur kom Hákon Daði með 5 en alls komust 10 leikmenn Hauka á blað í leiknum.

Það er svo annar stórleikur sem að bíður strákanna í næstu umferð þegar að nágrannar okkar í FH mæta í Schenkerhöllina mánudaginn 25. september kl. 20:00 og því um að gera fyrir Haukafólk að taka frá kvöldið strax. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…