Eins og allir vita þá enduðu strákarnir tímabilið með stæl í gærkvöldi með því að landa Íslandsmeistaratitlinum að Varmá. Liðið fór taplaust í gegnum úrslitin, unnu 8 leiki, og sópuðu FH, Val og Aftureldingu úr keppni.
Annað kvöld, miðvikudag, ætlum við að gera okkur glaðan dag í veislusalnum okkar að Ásvöllum. Boðið verður upp á veislumat að hætti Hauka. Húsið opnar kl. 19:00 og matur hefst kl. 20:00. Miðaverð kr. 2.500 og miðar eru seldir við innganginn. Allir velkomnir.
Áfram Haukar!
es. Það var að detta inn flott band en hinir einu sönnu The Backstabbing Beatles munu kíkja við og halda uppi fjörinu í rúman klukkutíma. Þeir stíga á stokk ca. 23.00.