Leikur 1 í 8 liða úrslitum á milli FH og Hauka er annað kvöld kl. 19:30

FH - Haukar. Leikur 1 í 8 liða úrslitum í Krikanum þriðjudaginn 7. apríl kl. 19.30Nú að lokinn deildarkeppninni í Olísdeild karla tekur úrslitakeppnin við og er það  hlutskipti Hafnarfjarðarstórveldana að eigast við en fyrsti leikurinn er annað kvöld, þriðjudagskvöld kl. 19:30 í Kaplakrika. Vinna þarf 2 leiki til að komast í undanúrslit.
Haukar enduðu deildina í 5. sæti en FH í því 4. og því á FH heimaleikjaréttinn í þessum slag. Í vetur hafa þessi lið þrisvar sinnum mæst í fyrsta skiptið í lok september í Krikanum þar sem FH hafði betur 25-24 (13-10). Leikur 2 var í Schenkerhöllinni 20. nóvember og endaði hann með jafntefli 22-22 (13-8). Leikur 3 var svo í Kaplakrika 5. mars þar sem Haukar léku við hvern sinn fingur og gjörsigruðu nágranna sína úr FH 20-33 (7-18). Í þeim leik gekk allt upp hjá okkar mönnum en FH liðið var alveg vindlaust eftir bikarúrslitahelgina þar sem þeir lutu lægra haldi gegn ÍBV í úrslitaleik. Hvað gerist á morgun er ekki gott að spá en liðin hafa endurheimt stórskyttur sínar úr meiðslum, Adam Hauk og Ísak Rafnsson. Það er að minnsta kosti öruggt að bæði lið vilja byrja þessa rimmu á sigri og munu án vafa berjast til síðustu mínútu.

Eins og svo oft áður geta áhorfendur gert gæfumuninn og því skorum við á alla að mæta í Krikann annað kvöld og styðja Hauka til sigurs. Mætum í rauðu.

Leikur 2 verður svo í Schenkerhöllinni fimmtudaginn 9. apríl kl. 19:30 og leikur 3, ef með þarf, í Kaplakrika sunnudaginn 12. apríl kl. 19.30.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…