Haukar sækja Eyjamenn heim í Olísdeildinni á morgun

ÍBV-Haukar. 23. umf. Olísdeildar karla. 13. mars 2015.Síðastliðinn mánudag mættu Haukar Stjörnunni í Schenkerhöllinni og voru okkar menn í bílstjórasætinu allan tímann en leikurinn endaði 28-16 (12-7). Margir leikmenn voru að leika vel en enginn betri en Giedrius sem varði 22 skot og var með ca. 61% markvörslu sem er frábært.
Á morgun föstudag fara Haukapiltar til Eyja og vilja sæll minninga vafalítið ná að sýna sitt rétta andlit gegn ÍBV í 60 mínútur en eins og menn muna þá áttu Haukar frábæran leik gegn ÍBV í undanúrslitum Coca Cola bikarsins en því miður var sá leikur aðeins góður í 45 mínútur. Eyjamenn snéru þá vonlítilli stöðu í sigur og slógu okkar menn út. Í byrjun febrúar mættust liðin í deildinni í Eyjum og þá sigruðu Haukar 17-21 (9-11).
Staða liðann í deildinni er svipuð en Haukar eru í 5. sæti með 23. stig og hafa ekki tapað leik í deildinni það sem af er árinu. ÍBV situr í 6. sæti með 22 stig en á leik til góða.

Leikurinn á morgun hefst kl. 19:30.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…