Fyrsti heimaleikur strákanna í handboltanum er á morgun

Heimir Óli og félagar í mfl. karla mæta Akureyri á morgun á ÁsvöllumOkkar menn mættu Fram í fyrsta leik mótsins sl. fimmtudag og náðu ekki að sína sitt besta og niðurstaðan varð eins marks tap, 22 – 21. Það er ljóst að deildin verður jöfn í vetur og mikilvægt að við verðum dugleg að styðja okkar lið, bæði stelpurnar og strákana, því það getur skipt sköpum í jöfnum leikjum.
Fyrsti heimaleikurinn hjá strákunum er á morgun kl. 15:00 þegar Akureyri kemur í heimsókn.
Nú mætum við í rauðu og styðjum okkar menn til sigurs.

Áfram Haukar!