Í gær léku Haukastelpur sinn fyrsta leik í Olísdeildinni í vetur þegar þær mættu FH í Kaplakrika. Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik en sú varð ekki raunin. Okkar konur mættu ákveðnar til leiks og voru kraftmiklar og hreyfanlegar í vörninni og áræðnar í sókninni. Þær sýndu strax klærnar og uppskáru 10 marka forystu í hálfleik, 5 – 15. Í síðari hálfleik héldu þær uppteknum hætti og sigruðu að lokum með 20 mörkum, 11 – 31. Þessi munur er væntanlega sögulegur í viðureignum Hafnarfjarðarliðanna og FH konur vilja örugglega gleyma þessum leik sem fyrst.
Allir útileikmenn Hauka komu við sögu í leiknum og náðu að skora. Nýr markvörður liðsins, Madalina Puscas, byrjaði leikinn og lék ágætlega í sínum fyrsta deildarleik.
Allir leikmenn Hauka áttu skínandi dag en engin lék þó betur en fyrirliðinn Karen Helga Díönudóttir sem var markahæst með 9 mörk, sem voru í öllum regnboganslitum. Það verður spennandi að fylgjast með stelpunum í vetur og með þessari baráttu og áræðni eiga þær vafalítið eftir að ná langt.
Næsti leikur liðsins er gegn Fylki á þriðjudaginn kemur, 23. september kl. 19:30, og er það líka útileikur.
Áfram Haukar!