Bráttuleikur á Ásvöllum í dag kl 17:00

Mótherjar Hauka í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa lið Dinamo Astrakhan frá RússlandiÍ dag mæta Haukar mæta rússneska stórliðinu Dinamo Astrakhan í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa í handbolta. Leikurin hefst kl 17:00. Síðari leikurinn fer fram ytra viku síðar eða sunnudaginn 14. september kl. 18:00 að staðartíma (+4). Þetta rússneska lið kemur alla leið austan frá Kaspíarhafi frá borginni Astrakhan. Liðið varð bikarmeistari í fyrra en lenti í 6. sæti í deildinni.

Þessir tveir Evrópuleikir sem framundan eru hjá Haukum eru leikir nr. 99 og 100 í Evrópukeppnum í handbolta. Glæsilegur áfangi, en fyrsti Evrópuleikurinn var við Kyndil frá Færeyjum í október 1980 fyrir nær 34 árum. Haukar komust áfram í 2. umferð og lentu þá á móti þýska stórliðinu Nettelstedt. Fyrri leikurinn var á Strandgötunni og var í járnum fram á síðustu mínútur en þá tryggðu þeir þýsku sér sigur 21-18. Útileikurinn var einnig jafn framan af, 8-7 í hálfleik, en Nettelstedt sigraði 17-12 og enduðu síðan sem Evrópumeistarar. Haukar fengu því alvöru eldskírn á móti einu bestu handboltaliði heims strax í upphafi og Evrópusagan státar af glæstum afrekum á móti mörgum af stærstu og bestu handboltaliðum heimsins undanfarin ár og áratugi.Haukaliðið hefur sýnst snerpu og styrk í fyrstu leikjum haustsins og Patrekur þjálfari segir að ekki veiti af því Rússarnir eru með líkamlega sterka leikmenn og það verður mikill baráttuleikur á sunnudaginn á Ásvöllum.  „Við ætlum að standa okkur og mætum í leikinn fullir sjálfstrausts“, segir þjálfarinn og að sjálfsögðu mæta Haukar í horni líka fullir sjálfstraust í baráttuna á sunnudaginn og í allan vetur.

Miðaverð er kr. 1.500 en frítt er fyrir 15 ára og yngri. Hauka í horni kortin gilda ekki inn en gilda að sjálfsögðu í VIP rými. 

Áfram Haukar!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…