Frábær stemmning á sögulegum handboltaleik

Mögnuð stemmning var á Ásvöllum í gær í troðfullri höllÍ gær réðust úrslitin í Olísdeild karla þegar leikinn var oddaleikur í viðureign Hauka og ÍBV í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Ég er efins um að önnur eins stemmning hafi verið á deildarleik eða leik í úrslitakeppni í handbolta á Íslandi. Vel á 3ja þúsund manns mættu til að styðja við bakið á sínu liði og nú voru allir virkir og því magnað andrúmsloft í salnum. Framan af fyrri hálfleik var leikurinn jafn en eftir 16 mínútna leik höfðu Eyjamenn náð 4ja marka forystu, 7 – 11. Haukamenn náðu að vinna þessu forystu upp og Árni Steinn jafnaði leikinn 15 – 15 þegar 3 sekúndur voru eftir af hálfleiknum. Haukar byrjuðu betur í síðari hálfeik og leiddu leikinn framan af. Mest náðu okkar menn 4ja marka forystu á 42. mínútu leiksins, 22 – 18. En eins og marg oft hefur verið talað um þá hætta Eyjamenn aldrei og þeir náðu að koma til baka og jafna leikinn á 47. mínútu leiksins, 23 – 23. Það sem eftir lifði leiks skiptust liðin á að skora og spennan var svakaleg. Sigurbergur jafnaði leikinn 59. mínútu leiksins, 28 – 28, og Eyjamenn fóru í sókn. Besti maður þeirra, Agnar Smári (13 mörk), tók skotið og Giedrius varði vel en hið ótrúlega gerðist að boltinn barst beint til Agnars Smára og hann skoraði, 28 – 29. Okkar menn náðu svo ekki að nýta þær ca. 15 sekúndur sem lifðu leiks. Þetta var leikur sem sannarlega gat dottið hvorum megin sem var en hann datt ekki okkar megin í þetta skiptið. Eyjamenn unnu þar með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í mfl. karla og við óskum þeim til hamingju með það.

Haukaliðið datt inn og úr gír í þessum leik en einn leikmaður lék þó allra best en það var stórskyttan okkar Sigurbergur Sveinsson sem skoraði 12/3 mörk úr 14 skotum, þvílíkur leikur hjá þessum magnaða leikmanni. Jón Þorbjörn, Einar Pétur og Adam Haukur voru líka með flotta nýtingu, Jón og Adam með 100% en Einar Pétur með 5 úr 6 skotum. Giedrius átti enn einn stórleikinn í markinu þrátt fyrir að ganga ekki vel í byrjun þá hrökk hann í gang og skilaði sannarlega sínu og endaði með 20 bolta.
Þrátt fyrir þetta tap getum við sannarlega verið stolt af okkar liði. Þeir unnu deildina, deildarbikarinn og bikarinn. Frábært lið og eiga Patrekur og Óskar hrós skilið enda voru væntingar vetrarins frekar hófstilltar en liðið missti 7 leikmenn frá því á síðasta tímabili og fékk einn til baka úr láni. 

Mörk Hauka: Sigurbergur 12/3, Jón Þorbjörn 5, Einar Pétur 5, Adam Haukur 3, Tjörvi 1, Brynjólfur 1, Árni Steinn 1.
Markvarsla: Giedrius 20 (49%), Einar Ólafur 1 (11%).

Haukar eru bestir!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…