Leikur 2 í Eyjum í dag – hópferð frá Ásvöllum

Elías Már var í miklu stuði í fyrsta leik liðanna á Ásvöllum og gerði 8 mörkÍ dag, fimmtudag, heldur úrslitaeinvígi Hauka og ÍBV áfram um hvort liðið muni hampa Íslandsmeistaratitlinum. Staðan er 1 – 0 fyrir Hauka og mjög mikilvægt að halda áfram á þessari braut og landa sigri á erfiðum útivelli í Eyjum. Mikilvægt er að strákarnir finni fyrir stuðningi á pöllunum og því verður boðið upp á hópferð frá Ásvöllum. Rútan fer frá Ásvöllum kl. 16:30 og eru 50 sæti í boði. Þeir sem ætla að tryggja sér sæti í rútunni vinsamlegast sendið póst á Guðjón á netfangið: gudjonag@heimsnet.is ATH: búið er að bæta við annarri rútu vegna góðrar eftirspurnar.
Herfjólfur leggur af stað rétt fyrir 19:00 og komið verður beint í leikinn sem hefst kl. 19:45. Heimferð er síðan strax eftir leik en búið er að fresta henni til að við getum náð bátnum en áætluð brottför frá Eyjum er 21:30.
Annar möguleiki fyrir stuðningsmenn er að fara með sömu ferð og liðið fer. Þá verður fólk að koma sér sjálft til Landeyjarhafnar og taka Viking tours bátinn sem fer af stað kl. 16:00. Ferðin kostar kr. 3.500 en allir fara síðan með sömu ferð með Herfjólfi til baka en verðskrá Herfjólfs má sjá hér.
Vonandi geta sem flestir farið til Eyja en við eigum rúmlega 100 sæti örugg á leikinn.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…