Fyrsta tapið á heimavelli í vetur

Einar Ólafur átti fína spretti í marki Hauka í kvöldÍ kvöld hófust undanúrslit í Olísdeild karla og fengu okkar menn lið FH í heimsókn. Frá upphafi leiks vantaði stemmningu í Haukaliðið á meðan flest virtist ganga upp hjá andstæðingunum. Hálfleikstölur voru 12 – 16 en í síðari hálfleik leit út fyrir að Haukar væru að komast inn í leikinn en á 38. mínútu náðu þeir að minnka muninn í 17 – 19 en nær komust okkar menn aldrei. Á síðustu mínútunum var aðeins spurning hve stór sigur gestanna yrði en lokatölur voru 25 – 32.

Það sem var til fyrirmyndar í þessum leik var stemmningin á pöllunum en hún náði því miður ekki að skila okkar mönnum sigri í þetta skiptið. Það er aftur á móti engin ástæða til að hengja haus enda okkar strákar deildarbikarmeistarar, bikarmeistarar og deildarmeistarar. Þetta var fyrstu leikurinn í þessari rimmu en það þarf að vinna 3 leiki til að komast í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn. Eins og allir vita þá býr miklu meira í okkar liði en þeir sýndu í kvöld, þeir vita það best sjálfir, og munu vafalítið mæta dýrvitlausir í Kaplakrika í leik II á fimmtudaginn kl. 19:45.

Mörk Hauka: Tjörvi Þorgeirsson 5, Sigurbergur Sveinsson 5/2, Jón Þorbjörn Jóhannsson 4, Adam Haukur Baumruk 3, Árni Steinn Steinþórsson 3, Þórður Rafn Guðmundsson 2, Jónatan Ingi Jónsson 1, Einar Pétur Pétursson 1, Elías Már Halldórsson 1.
Markvarsla: Einar Ólafur Vilmundarson 8 (31%), Giedrius Morkunas 5/1 (26%).

Nú mætum við öll í Kaplakrika á fimmtudaginn og styðjum okkar menn til sigurs.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…